Kristján Jónsson bóndi á Nesi í Grunnavík fæddist 11. október 1874 á Stað í Grunnavík. Hann lést 23. júní árið 1934.

Foreldrar hans voru Jón Sigurðsson bóndi á Stað. F. 15. október 1848. D. 8. september 1892 og Jónína Þóra Jónsdóttir. F. 31. október 1848 á Sveinseyri við Dýrafjörð. D. 9. maí 1940.

Kristján var búfræðingur frá Ólafsdalsskóla og líklega fyrsti búfræðingurinn í sveitinni. Hann missti ungur föður sinn í sjóslysi. Eftir það fluttist móðir hans ásamt börnum sínum að Sútarabúðum og bjó hún þar til elliára.

Kristján átti ásamt móður sinni tvö stór áraskip, Síldina sem var fimm manna far og Blíðvið sem var sexæringur.

Kristján var vanur sjómaður og gerðist ungur formaður á áraskipunum, sem voru í eigu hans og móður hans. Hann var þá vel efnum búinn, enda var hann aflasæll formaður.

Síldin er til enn í dag og mun eiga að fara á byggðasafn á Snæfellsnesi. Kristján setti vél í Blíðvið og var hann langfyrsti mótorbáturinn í Grunnarvíkurhreppi.

Kristján var um árabil í hreppsnefnd og í stjórn búnaðarfélagsins.

Kristján kvæntist Sólveigu Magnúsdóttur 1906 og bjuggu þau allan sinn búskap á Nesi.

Kristján og Sólveig byggðu bæ sinn á Nesi um 1910 og var hann á þeim tíma einn reisulegasti bærinn í sveitinni.

Á Nesi var stundaður fjárbúskapur þar sem kindum var beitt í fjöruna á vetrum. Einnig voru stundaðir sjóróðrar.

Kristján veiktist af liðagigt á miðjum aldri og var óvinnufær svo árum skipti og hafði það slæm áhrif á hag heimilisins. Þegar hann hafði náð heilsu á ný og fjárhagurinn var farinn að batna, veiktist hann af krabbameini sem leiddi hann til dauða árið 1934 eftir langa sjúkdómalegu.

 

Sólveig Magnúsdóttir húsfreyja á Nesi fæddist á Snæfjöllum á Snæfjallaströnd 1. mars 1888. Hún lést 31. maí árið 1967 í Reykjavík.

Foreldrar hennar voru Magnús Elíasson fæddur 1861 og Halldóra Friðgerður Gísladóttir kona hans fædd 8. september 1868.

Sólveig missti föður sinn í sjóslysi 22. júní 1888. Nokkru síðar fluttist móðir hennar til Furufjarðar, ílengdist þar og giftist Bæring Bæringssyni bónda þar. Nokkrum árum síðar missti Sólveig einnig móður sína, en ólst upp í Furufirði, hjá Bæring stjúpföður sínum og síðari konu hans Guðrúnu Tómasdóttur. Halldóra og Bæring eignuðust tvö börn, Guðrúnu og Bæring.

Sólveig giftist ung Kristjáni Jónssyni og bjuggu þau á Nesi.

Sólveig bjó á Nesi eftir andlát Kristjáns og byggði steinhús árið 1935 niður á Nesbökkum, en þar hafði Nesbærinn staðið um ómuna tíð.

1948 fluttist Sólveig til Reykjavíkur og átti þar heima síðan.


Ættir Kristjáns Jónssonar

1. Liður
Kristján Jónsson bóndi á Nesi í Grunnavík, Norður-Ísafjarðarsýslu.
F. 11. október. 1874. D. 23. júní 1934.

2. Liður
Jón Sigurðsson bóndi að Stað í Grunnavík.
F. 15. október 1848. D. 8. september 1892.
Jónína Þóra Jónsdóttir kona hans. F. 31. október 1848. D. 9. maí 1940.

3. Liður
Sigurður Sigurðsson bóndi í Kjós í Grunnavíkurhreppni, en síðar á Læk í Aðalvík.
F. 23. mars. 1823. D. 22. janúar 1906.
Ingibjörg Jónsdóttir kona hans F. 7. mars 1823. D. 18. apríl 1894.
Jón Einarsson skipstjóri Sveinseyri við Dýrafjörð, D. 28 október 1848.
Þóra Sigurðardóttir kona hans.

4. Liður
Sigurður Jónsson bóndi í Þverdal í Aðalvík.
Sigfríður Sigurður kona hans.
Einar Jónsson dannebrogsmaður bóndi í Kollafjarðarnesi.
Ragnheiður Jónsdóttir kona hans.
Sigurður Guðlaugsson sýslumaður.
Elín Kristín Erlendssdóttir kona hans.


Ættir Sólveigar Magnúsdóttur

1. Liður
Sólveig Magnúsdóttir húsfreyja á Nesi í Grunnavík.
F. 10. mars  1888. D. 31. maí 1967.

2. Liður
Magnús Elíasson F. 1861. D. 22. júní 1888.
Halldóra Friðgerður Gísladóttir F. 8. september 1868.

3. Liður
Elías Ebeneserson F. 28. júlí 1817. D. 11. ágúst 1898.
Sólveig Bjarnadóttir kona hans. F. 26. ágúst 1841. D. 17. júlí 1868.
Gísli Steindórsson bóndi á Kirkjubóli í Skutulsfirði.
Guðrún Halldórsdóttir kona hans.

4. Liður
Ebeneser Jónsson bóndi á Dynjanda í Jökulfjörðum
Elín Einarsson kona hans.

5. Liður
Steindór Jónsson bóndi Hrauni
Guðrúnu Halldórsdóttir
Jón Brynjólfsson

Samantekt Sigfúsar Kristjánssonar 1998