Jónína Kristín Kristjánsdóttir. F. 13. júlí 1907. D. 2. janúar 1979.
M. Sigurður Þorbjörnsson. F. 20. mars 1912. D. 18. desember 2000.
Hún fluttist frá Nesi til Reykjavíkur 1935 og bjó þar síðan.

Ólafur Sigurður Kristjánsson. F. 17. desember 1908, D. 23. mars 1987.
K. Jónína Guðrún Tryggvadóttir Kvaran. F. 2. október 1924. D. 5. nóvember 1985.
Ólafur fluttist frá Nesi til Reykjavíkur í kring um 1930  og bjó þar síðan. Var lengi tryggingamaður og deildarstjóri hjá Samvinnutryggingum.

Halldóra Kristjánsdóttir. F. 21. desember 1910. D. 8. nóvember. 1916.

Magnús Kristjánsson. F. 6. ágúst 1915. D 11. nóvember 1984.
K. Svanildur Jósefsdóttir. F. 13. maí 1926.
Magnús fluttist frá Nesi 1935 til Ísafjarðar, en nokkrum árum síðar til Reykjavíkur og bjó þar síðan. Hann var rafvirkjameistari og vann síðustu árin hjá Rafmagnsseftirliti ríkisins.

Jón Hermann Kristjánsson. F. 6. júlí 1917. D. 15. júní 1990.
K. Sigríður Hrefna Sigfúsdóttir F. 4. desember 1923. D. 27. janúar 1991.
Jón fluttist til Reykjavíkur frá Nesi 1942, og síðar í Voga á Vatnsleysuströnd og var þar kennari og skólastjóri.

Sigfús Sigurður Kristjánsson. F. 17. ágúst 1924.
K. Jónína Kristín Kristjánsdóttir leikstjóri. F. 3. maí 1922.
Sigfús fluttist frá Nesi til Reykjavíkur 1948, en 1954 fluttist hann til Keflavíkur og hefur búið þar síðan. Sigfús starfaði lengi hjá tollgæslunni og var yfirtollvörður á Keflavíkurflugvelli.

Ásdís Ásgeirsdóttir. F. 7, nóvember 1930. Kom að Nesi barn og ólst þar upp. Fluttist til Ísafjarðar 1948 og hefur verið þar nær óslitið síðan.