Enn var lagt af stað til Grunnavíkur og var núna stefnt á að ganga betur frá skúrnum ásamt því að njóta útivistar og náttúrunnar á staðnum.
Þátttakendur í verkefni:
Fyrra holl, 15.-18. ágúst:
- Sigfús Kristjánsson (frá Nesi í Grunnavík)
- Finnur Hrafn Jónsson (sonur Jóns Kristjánssonar heitins)
- Hrefna Namfa Finnsdóttir – 12 ára (dóttir Finns)
- Guðjón Magnússon (fjölskylduvinur ættaður af Vestfjörðum)
Seinna holl 17.-20. ágúst:
- Kristján Sigfússon, (sonur Sigfúsar Jónssonar)
- Agla Kristjánsdóttir – 10 ára (dóttir Kristjáns Sigfússonar)
- Kristján Jónsson (sonur Jóns Kristjánssonar heitins)
- Bergljót Sigurðardóttir (kona Sigfúsar Jónssonar)
Ferðaþjónusta Grunnavíkur flutti okkur á Ramónu yfir Ísafjarðardjúpið yfir til Grunnavíkur. Einnig fengum við gistingu hjá þeim á Sútarabúðum.
Fyrri hópurinn koma frekar seint að kvöldi 15. ágúst til Grunnavíkur og var komið myrkur og hellirigning. Ákveðið var að skilja eftir hluta af farangrinum í Ramónu til að taka í land daginn eftir. Veður versnaði hins vegar um nóttina þannig að ekki var hægt að athafna sig á Ramónu í Grunnavík fyrr en veður lægði seinna um daginn þann 16. ágúst. Það dróst því að hægt væri að hefja vinnu við skúrinn vegna þess að verkfærin voru í Ramónu.
Ýmsir hlutir í skúrnum voru þó kláraðir samanber verkþáttalista hér á eftir.
Við skoðun á skúrnum kom í ljós okkur til mikilla vonbrigða að vetrarveður veturinn á undan höfðu skekkt skúrinn nokkuð á undirstöðum sínum. Undirstöður höfðu hliðrast 1-2 cm í norð-vesturátt og hallaði skúrinn sem nemur 1-2 sentimetrum á hæð hliðarinnar.
Þetta var rætt fram og aftur og eftir að hafa skoðað ýmsar leiðir til lausnar var ákveðið að setja niður akkeri sitt hvoru megin við skúrinn og stög í gafla hans úr þeim. Ekki var tími eða búnaður á staðnum til að framkvæma þetta í þessari ferð. Friðrik á Sútarabúðum bauðst til að taka verkið að sér um haustið. - Sjá nánar hérna.
Seinni hópurinn tók að sér málningu á skúrnum og ýmsan frágang. Einnig tíndu þau mikið af berjum, bæði krækiberjum og aðalbláberjum sem voru í miklu magni í Grunnavíkinni.
Veður í ferðinni var hið þokkalegasta.
Myndir frá ferðinni má sjá hérna.
Verkþættir ferðar:
|
Nr.
|
Verkþáttur
|
Efni
|
Verkfæri
(önnur en venjuleg handverkfæri)
|
|
1
|
Grafa fyrir frárennslislögn salernis
(bíður)
|
Á staðnum
|
Skófla á staðnum, bæta þyrfti við stunguskóflu
|
|
2
|
Setja olíubornar plötur í botn gólfs til að verjast músum
(klárað)
|
Vantar, ? plötur
Naglar
|
Vélsög æskileg
|
|
3
|
Setja einangrun í gólf
(klárað)
|
Einangrun er á staðnum
|
Hnífur til að skera
|
|
4
|
Setja gólfplötur í skúrinn
(klárað)
|
Plötur eru á staðnum, Naglar væntanlega líka
|
Vélsög æskileg
|
|
5
|
Setja niður salerni, tengja við frárennsli
(byrjað)
|
Salerni er á staðnum, ath. hvort kítti, skrúfbolta eða fittings vantar ?
|
|
|
6
|
Vatn í salerni – hvernig verður það leyst??? – tengt við bæjarlækinn???
(skoðað)
|
Slöngur eru til á staðnum
|
|
|
7
|
Setja í salernishurð
(bíður)
|
Er til á staðnum
|
Stingsög, borvél
|
|
8
|
Setja skrá í salernishurð
(bíður)
|
Er til á staðnum
|
|
|
8
|
Setja í aðalhurð
(bíður - vegna tæknilegra vandamála)
|
Er til á staðnum
|
Stingsög, borvél
|
|
9
|
Setja skrá í aðalhurð
(bíður)
|
Er til á staðnum
|
Borvél
|
|
9
|
Setja í glugga
(klárað)
|
Glugginn er til á staðnum, vantar kítti?
|
Stingsög
|
|
10
|
Einangra veggi að innan
(bíður)
|
Heil rúlla er til af steinull, hún dugar í gólfið og trúlega megnið afa veggjunum
|
Heftibyssa?
|
|
11
|
Mála skúr að utan
(klárað)
|
Einhver málning er til á staðnum, nóg á allan skúrinn ca. 30m2 ?
Þolir málningin frost sem er á staðnum?
|
Penslar
|
|
12
|
Setja skilvegg milli salernis og aðalrýmis
(bíður)
|
Er efni til á staðnum?
|
|
|
13
|
Setja stiga upp bakka
(klárað - sett var upp kaðalhandrið sem hjálpar)
|
Vantar 2 planka, þverspýtur og girðingarstaura til að festa
|
|
|
14
|
Brúa bæjarlæk
(klárað)
|
Ath. efni í tréverki í gamla bænum
|
|
|
15
|
Klæða veggi að innan
(bíður)
|
Er til efni?
|
|
|
16
|
Myndir af þakkanti fyrir Óskar
(klárað)
|
|
|
|
17
|
Mæla glugga
(klárað)
|
|
|
|
18
|
Grafa til að beina lækjarsprænu við Kumlá til að renna í Kumlá í stað þess að renna beint til sjávar í gegnum bakka. Þetta gerir betur akfært út á Nes frá botni Grunnavíkur. – Ath. með Sigfúsi.
Sbr. Friðrik í Sútarabúðum verður vélgrafa þessa viku í Grunnavík
(bíður)
|
|
|