Ferðasaga Hrefnu 2006
Grunnavík, Júlí. 2006
Inngangur
Ferðin var fjölskylduferð til Grunnavíkur í Jökulfjörðum til að byggja kaffiskúr við bæ fjölskyldunnar þar sem heitir Nes. Kaffiskúrinn fékk nafnið Litlaflöt.
Ferðin vestur
Ég og pabbi fórum í jeppa til Nettó. svo hittum við fjölskylduna okkar og við spjölluðum um ferðina. Við fórum til Borgarness. Ég fékk pízzu og pabbi kjötbollur. Svo kom Siggi frændinn minn með okkur í jeppann alla leið til Ísafjarðar. En þá stoppaði pabbi á bensínstöð og fékk sér bensín. Þá keyrðum við öll beint til Ísafjarðar.
Á Ísafirði
Þegar við komum til Ísafjarðar, fundum við gistihús sem hét Gamla Gistihúsið. Öll fjölskyldan gisti þar.Við fórum að finna bát til að flytja okkur og efnið í kaffiskúrinn til Grunnavíkur. Engin vegur er til Grunnavíkur.Síðan bárum við allar spýturnar í bátinn sem átti að flytja efnið fyrir okkur. Einnig fengum við lánaðan annan bát sem við notuðum til að sigla til Grunnavíkur.
Bátsferð til Grunnavíkur
Svo fórum við af stað, pabbi tók mikið af myndum og ég líka. Það tók klukkutíma að komast til Grunnavíkur. Ég sofnaði í svona 25 mínótur á leiðini. Svo þegar við komum þá náðum við í árarbát og við þurftum að nota hann til að komast í land.
Í Grunnavík
Þegar við komum á land þurfti sumt fólk að taka spýturnar upp á land. Á meðan var ég að reina að drepa flugur með flugnaspaða. Þá voru spýturnar komnar upp á land. Svo fór ég í göngutúr með Daníel og Sigga, Siggi vildi veiða og ég vildi leika í sjónum og Daníel vildi synda í sjónum en gat það ekki út af því þegar hann mundi koma á land mundi hann detta útaf steinunum. Fúsi frændi gróf fyrstu holuna á Litluflöt. Svo byrjuðu allir að grafa holur, meira að segja ég. Það var gamallt hús í Grunnavík og Daníel og Siggi tóku til í húsinu og hentu sum dóti niður í fjöruna og svo brenndu þeir það með bensíni, það kom mikill eldur. Svo voru allir búnir með holurnar. Þá settu þau lánga steina ofaní og settu svo steypu og eftir einn dag komum við aftur og mokuðum við aftur oní holurnar. Ég gerði stól úr grasi og sofnaði í honum, En Kalli rústaði óvart stólnum. Svo gerðum við spýtur allstaðar í kassa, og það var neðri parturinn á húsinu. Svo var kl. orðin 8:00 og við öll fórum heim á bátnum.
Gisting í Bolungarvík
Við fundum gistingu í Bolungarvík, Og sváfum þar. Gistingin var ein íbúð fyrir okkur í einn dag. Ég svaf í herbergi með koju með pabba, Kalli svaf í stofunni þar sem var rúm, amma og afi sváfu í hjónaherberginu, Siggi sofnaði á sófanum í stofunni. Þessi gisting var frábær útaf því það þurti ekki að borga fyrir mig.
Ferðin heim
Svo fóru allir heim. Ég pabbi, amma, afi og Kalli fórum með Baldri yfir Breiðafjörðinn. Svo fórum við á bílin og keirðum restina heim.
Höfundur: Hrefna Namfa Finnsdóttir, 10 ára
Tæknileg aðstoð: Finnur Hrafn Jónsson