Þessi kafli vefsins fjallar um byggingar sem eru á jörðinni.

Stærsta húsið á jörðinni, sem núna stendur uppi, er gamla steinhúsið sem var byggt 1935. Þak, gluggar og annað tréverk í húsinu er ýmist horfið eða ónýtt. Steinveggir eru orðnir nokkuð veðurbarðir, sérstaklega sunnan og austan megin en eru samt frekar heillegir að sjá. Steingólf í húsinu virðist vera í góðu lagi.

Súrheysgryfja var byggð upp úr 1940 af Sigfúsi Kristjánssyni. Hún stendur nokkuð yfir ofan gamla steinhúsið. Af henni stendur nú eftir steintóft ein.

Gamli bærinn sem var notaður á undan steinhúsinu er alveg horfinn. Nokkru eftir að steinhúsið var tekið í notkun fauk hann í miklu veðri.