Þessi kafli vefsins rekur byggingarsögu kaffiskúrs sem heitir Litlaflöt.
Norðvestan við gamla steinhúsið á Nesjörðinni er lítil grasflöt sem heitir Litlaflöt. Að sögn Sigfúsar Kristjánssonar þótti þar vera mjög skjólgott. Flötin er mátulega nálægt sjávarbakkanum til fá skjól frá honum og fyrir sunnan og austan er nokkur hæð sem skýlir.
Í júlí 2006 kom hópur eigenda Nesjarðarinnar og hóf byggingu á kaffiskúr á Litluflöt undir forystu og verkstjórn Sigfúsar Kristjánssonar. Sigfús gaf skúrnum nafnið Litlaflöt.
Um er að ræða ca. 7 fermetra tréskúr sem er hugsaður sem afdrep fyrir þá sem kunna síðar að koma til að vinna við að laga gamla steinhúsið.