Móar, gras, skógarkerfill, krækiberjalyng, bláberjalyng, aðalbláberjalyng og margar fleiri jurtir má finna á Nesjörðinni. Í fjörunni má finna söl og annað hnossgæti.

Mór er í hluta jarðarinnar og má sjá greinileg merki um mótekju.

Meðal landdýra sem hafa sést eru refir, minkar og hagamýs. Í fjörunni má sjá fjölbreytt dýralíf. Seli, álftir og skarfa má stundum sjá í fjörunni til viðbótar við hefðbundna sjófugla.

Mófuglar eru algengir á sumrin uppi á landi en hrafnar eru áberandi á haustin.


Selur fyrir utan Nesfjöruna. Rétt áður en myndin var tekin hafði Sigfús Kristjánsson vakið hann af værum blundi í fjörunni. Ljósmyndari var því miður of svifaseinn og náði ekki að festa það á pixla.


Svanir við Nesfjöruna