Landamerki fyrir jörðina Nes og jörðina Naust í Grunnavíkurhreppi. Kumlá skiptir löndum milli Sútarbúðalands og Neslands.
Partur nr. 1 af Neslandi heitir Þembupartur, og nær frá Kumlá að merki utanvert við Illukeldu.
Þar næst koma tveir samliggjandi partar sem fylgja Naustum og ná þeir frá Illukeldu að Stóralæk utanverðum, og er það land kallað Fjársteinspartur, eða partur 2 ef talið er frá Kumlá.
Partur nr. 3 er Bæjarpartur, sem fylgir Nesi og nær frá Stóralæk að túngirðingu, sem aðskildi tún bæjanna tveggja Nes og Naust. Sigfús Kristjánsson og Stefán Símonarson hafa endurnýjað merkingar á jarðarpörtunum með álstikum og álplötun með nöfnum jarðpartanna, að því er varðar strandlengjuna, en þaðan skulu allar merkjalínur dregnar frá fjöru til fjalls eins og seigir í skiptabréfinu frá 17. júlí 1938.
Partur nr. 4 er Garðsmýrarpartur nær frá áðurnefndri túngirðingu að Naustalæk eldri utanvert og fylgir Naustum.
Partur nr. 5 er Stekkjarpartur og nær frá Naustalæk að utanverðu Heimsta Djúpagili og tilheyrir Nesi.
Partur nr. 6 er Hvalgrundarpartur nær frá utanverðu Heimsta Djúpagili að gömlum mógröfum innarlega á Hvalgrund, en þar rennur lækjasytra til sjávar. Þennan part eiga Naust.
Partur nr. 7 heitir einnig Hvalgrundarpartur og er hann hluti af Neslandi. Hann nær frá ofangreindum mógröfum og endar yst á Hvalgrund, ekki langt frá Íllubót.
Samantekt Sigfúsar Kristjánssonar í samráði við Stefán Símonarson frá Naustum. Ca. 2004.