Teikning Sigfúsar Kristjánssonar af fyrirkomulagi í gamla bænum

Gamli bærinn á Nesi mun hafa verið byggður í kringum 1910. Hann var þriggja bursta með timburþiljun. Húsin þrjú voru sambyggð, en torfveggir báðum megin sem náðu upp undir þekju. Bæjarhúsin voru raunar tvö en þriðja húsið var hlaða, en bak við hana stóð fjósið. Miðhúsið var kallað dyrahús, en á því voru útidyrnar.

Þegar komið var inn í bæinn var fyrst gangur. Á vinstri hönd var stofan, en um dyr til hægri var gengið inn í geymslu. Þar var stigi upp á dyraloft sem kallað var. Þar bjó stundum fólk sem var í húsmennsku á Nesi.

Innar við ganginn var gengið inn í eldhúsið til hægri. Til vinstri handar var búrið og innst við ganginn var stiginn upp í baðstofuna. Baðstofan var með heflaðri skarsúð. Veggir upp að súð voru þiljaðir með panil. Stofan var einnig þiljuð að innan með panil. Í baðstofunni var kolaofn, sem tengdur var skorsteini sem var nær miðju dyrahúsi. Innst inni í baðstofunni var afþiljað herbergi.

Suðvestan megin bæjarins var kálgarður girtur torfveggjum og meðfram suðvesturhlið bæjarhúsanna var upphækkun vaxin grasi og náði hún upp undir glugga á búri og eldhúsi. Torfþak var á baðstofu og dyrahúsi en járnþak á hlöðunni.

Flutt var úr gamla bænum haustið 1935, en það sumar var byggt steinhús niður við bakkana. Á þeim stað hafði Nesbærinn staðið lengi og allt fram yfir aldamótin.


Gamli bærinn á Nesi. Teikning eftir Sigfús Kristjánsson

 
Útihúsin á Nesi og skektan.
Frá vinstri: fjós, fjárhús, lambhús og í baksýn vinstra megin hæsnahús og hlaða. Skektan er lengst til vinstri. Mynd tekin um 1940.

 

Samantekt Sigfúsar Kristjánssonar 1998