Sútarabúðir er næsta jörð við Nes suðaustan megin. Jörðin nær frá Staðaránni að Kumlá sem markar skilin við Nesjörðina.

Saga Sútarabúða og Nes jarða er samtvinnuð vegna þess að móðir Kristjáns á Nesi, Jónína Þóra Jónsdóttir keypti Sútarabúðir eftir að hún missti mann sinn í sjóslysi fyrir aldamótin 1900. Henni búnaðist vel og þar ól hún upp börn sín og kom þeim öllum til mennta.

Einnig má nefna að Ásdís Ásgeirsdóttir ólst upp á Nesi. Sonur hennar Friðrik Jóhannsson er núna ferðabóndi á Sútarabúðum.

Niðjar Kristjáns og Sólveigar frá Nesi eiga ennþá smáhlut í jörðinni Sútarabúðir.

 


Bærinn á Sútarabúðum haustið 2007


Friðrik og Sigurrós á Sútarabúðum