Sigfús hefur ort mörg kvæði og skrifað nokkuð af sögum.

Hér er eitt lítið dæmi um kvæði hans:

Grunnavík

Sveitin kær. Sólin skær
sveipar þig dýrðarljóma.
Engi og völl faðma fjöll,
fegursta safnið blóma.
Blómið sem óx þar innst í mér
á sér þar sterkar rætur.
Allt sem er, ilm þess ber.
Andi þess hlær og grætur.
 

Ljóðið gaf Sigfús Kristjánsson Grunnvíkingafélaginu á Ísafirði. Lag Alparós.
 

Ljóða og vísnabók Sigfúsar "Föndrað í línum" kom út árið 2005.