Árið 2004 hafði Sigfús Kristjánsson gengið alla Nesjörðina og sett niður landamerkjahæla í samræmi við fyrirliggjandi staðarlýsingar í eignaskiptasamningi á milli Nes og Naustajarðanna.
Þetta var gert í samráði við Stefán Símonarsson, einn eigenda Naustajarðarinnar. Þeir Sigfús og Stefán urðu sammála um að eðlilegast væri að miða við að skikarnir afmörkuðust af samhliða línum sem lægju á milli fjalls og fjöru. Ein staðarlýsingin á mörkum skikanna lýsir tveimur punktum sem hægt er að nota til að miða við um afstöðu línanna.
Þann 2. september 2006 gekk ég (Finnur H. Jónsson) með Sigfúsi um alla skikana til að finna alla landamerkjahælana og mæla og skrá GPS hnit þeirra. Þar með er kominn grundvöllur að því að teikna upp skikana í samræmi við eignaskiptalýsinguna. Ekki eru aðrir núlifandi en Sigfús og Stefán sem þekkja betur staðhætti til að átta sig á því hvað er verið að vísa í með staðháttalýsingum eignaskiptalýsingarinnar.
Eftirfarandi mæliniðurstöður fengust um staðsetningar mælipunktanna:
Kumlá við fjöruborð:
N: 66.14.396 W: 22.52.711
Nes - Þembupartur mörk við Naust - Fjársteinspartur - við Illukeldu:
N: 66.14.387 W: 22.52.900
Naust - Fjársteinspartur mörk við Nes - Bæjarpartur - við Stóralæk:
N: 66.14.430 W: 22:53.397
Nes bær:
N: 66.14.477 W: 22.53.625
Nes - Bæjarpartur mörk við Naust Garðsmýrarpartur - punktur nær sjó:
N: 66.14.500 W: 22.53.783
Steinn á milli í girðingarlínu:
N: 66.14.456 W: 22.53.825
Nes - Bæjarpartur mörk við Naust Garðsmýrarpartur - punktur fjær sjó - við enda girðingar fyrir ofan stein:
N: 66.14.399 W: 22.53.871
Naust - Garðsmýrarpartur mörk við Nes Stekkjarpartur - við Gamla Naustalæk:
N: 66.14.513 W: 22.54.366
Nes - Stekkjarpartur mörk við Naust Hvalgrundarpartur - við Djúpa-Heimstagil:
N: 66.14.441 W: 22.55.040
Naust - Hvalgrundarpartur mörk við Nes Hvalgrundarpartur - við hnausa og gamlar mógrafir:
N: 66.14.332 W: 22.55.641
Yst á Hvalgrund eftir GPS korti að dæma:
N: 66.14.133 W: 22.56.663
Nákvæmni gefin upp 5-7m á tæki meðan mælingar voru teknar
Gerð tækis: Garmin 60CS
Finnur Hrafn Jónsson