Fyrir utan það að halda til haga almennum upplýsingum sem varða Nesjörðina er líka hugmyndin að eigendur jarðarinnar geti notað hann sem samskiptatæki.
Hluti vefsins er lokaður og aðgangsstýrður og er ætlaður fyrir upplýsingar og samskipti sem ekki eiga erindi út fyrir eigendahópinn sem er reyndar nokkuð stór.
Til að komast í lokaða hluta vefsins þarf notendanafn (póstfang) og lykilorð sem úthlutað er af umsjónarmanni vefsins. Reynt verður að sjá til þess að allir fá aðgang um leið og vefurinn er allur kominn upp.
Umsjónarmaður vefsins tæknilega og efnislega til að byrja með er Finnur Hrafn Jónsson, sonur Jóns Kristjánssonar sem fæddist á Nesi. Finnur er höfundur efnis nema annað sé tekið fram. Öllu efni sem aðrir kunna að hafa og erindi á inn á vefinn verður að sjálfsögðu tekið fagnandi.
Sigfús Kristjánsson hefur reynst ómetanleg heimild um lífið á Nesi og í Grunnavík á síðustu öld. Sigurður Sigfússon, Guðjón Magnússon og Hrefna Namfa Finnsdóttir hafa einnig lagt til myndir á vefinn. Hrefnu er einnig þökkuð aðstoð við gagnainnslátt o.fl.
Hafa má samband í símum 899 0478 eða 587 0170. Einnig má senda tölvupóst á finnur (hjá) dexxen (punktur) com.
kveðja,
Finnur Hrafn Jónsson