Aftur var haldið af stað vestur 1. september 2006 til að treysta skúrinn fyrir vetrarveður sem vitað er að geta verið býsna hörð í Grunnavík.
Í þetta skipti var lítið sem þurfti að flytja af efni enda mest af því komið á staðinn.
Far yfir Djúpið og gisting á Sútarabúðum fékkst hjá Ferðaþjónustu Grunnavíkur. Friðrik og Sigurrós sem fara þar fyrir reyndust okkur mjög hjálpleg í þessari ferð.
Hvasst var á Djúpinu þegar siglt var yfir til Grunnavíkur en ágætlega fór um okkur í Ramónu.
Þátttakendur:
- Sigfús Kristjánsson
- Finnur Hrafn Jónsson
- Sigurður Sigfússon
- Hrund Einarsdóttir
Í þessari ferð náðist að klára að reisa útveggi skúrsins ásamt því að styrkja hann fyrir vetrarveður.
Einnig notuðu Sigfús og Finnur tækifærið, gengu endilanga jörðina og mældu GPS hnit á landamerkjahælum sem afmarka skika Nes- og Naustajarðanna. Hælana hafði Sigfús sett tveimur árum fyrr í samræmi við staðháttalýsingar í jarðaskiptasamningi.
Selur og álftir fylgdust með okkur hluta af leiðinni þegar við gengum fjöruna.
Gangan var ekki auðveld. Grasið gaf eftir í hverju skrefi og náði oft upp fyrir hné. Sums staðar gengum við eftir fjörunni en þar skrikaði undan fæti hver steinn sem stigið var á. Sigfús, áttræður maðurinn kvartaði þó ekki og kláraði þetta auðveldlega.
Veðrið í ferðinni var frekar kalsamt, 5-6 stiga hiti, kaldi og rigningarsuddi. Gerólíkt blíðunni sem verið hafði fyrr um sumarið.
Komið var til baka til Reykjavíkur aðfaranótt 4. september.

Sigfús notaði tækifærið og gaf Friðriki Jóhannssyni nágranna okkar í Sútarabúðum eintak af vísna- og ljóðabók sinni "Föndrað í línum".
Nokkrar myndir úr ferðinni eru hérna.